I carried a watermelon...
09.04.2007 22:53:39 / iris

how to kill a hamster ...

Gleðilega páskahátíð allir saman. Mín búin að halda upp á páskana ásamt Svömpu meira og minna inni á Oliver og Vegamótum ... í stuðinu ... erum við vinkonurnar núna alveg vissar um að ef einhverjir verðandi eiginmenn hafi haft augastað á okkur á skemmtistöðunum í gær þá séu þeir nú, því miður, algjörlega orðnir afhuga þar sem við vorum langt leiddar í hlátur- og þreytugalsanum í nótt ... sem þýddi auðvitað að við dönsuðu eins og F Í F L og vorum ekkert feimnar við að líta út eins og H Á L F V I T A R ... ;)

Annars þá langar mig að deila með ykkur sögu af frænda mínum og góðvini Sveini ... Sveinn átti hamstur sem hét Chuvy. Einn morguninn slapp hann úr búrinu sínu og fann frændi hann ekki áður en hann fór í vinnuna. Þegar hann kom svo heim um kvöldið sá hann Chevy litla skjálfandi ofaní þvottaefninu :( ... þar sem það var laugardagskvöld og hamsturinn var í tremmakasti með þvottaduft lekandi úr augum og eyrum þá ákvað hann að stytta hamsturinn aldur, og af einskærum kærleika vil ég taka fram því ekki vildi frændi sjá hamsturinn sinn þjást mínutunni lengur. En hvað gerir Sveinn þá. Hvernig átti hann nú að farga dýrinu? Hann ákveður einhverra hluta vegna, ekki spyrja mig hvernig honum datt þetta í hug, en hann setur hamsturinn í poka og skundar út í bíl... setti pokann fyrir framan dekkið og settist fyrir aftan stýrið ... ætlaði sem sagt að keyra yfir hann! já, keyra yfir hann... eftir smá umhugsun hættir hann við því hann varð hræddur um að morðtilraunin mundi mistakast, sá fyrir sér að pokinn myndi springa og að hamsturinn myndi fljúga upp í loftið... hann fór því aftur inn og kramdi hann. Hamsturinn. Hann kramdi hann! og þá var sagan búin.

Vona að þið hafið lært eitthvað af þessari sögu. Persónulega hefði ég ráðlagt honum að drekkja greyjinu. ég get hins vegar ekki sagt ykkur hvað ég pissaði mikið á mig af hlátri þegar Sveinn sagði mér þessa sögu. ómetanlegt frásögn frá einum undarlegasta manni sem ég mun nokkurn tímann þekkja ;)

 Ást og friður alla daga


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 17:20:21 / iris

Vilt þú láta ljós þitt skína í kvöld?

Ég lýsi eftir jarðarbúa sem vill koma með mér í karókí í kvöld ... ? Anyone? Anybody?

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 21:19:57 / iris

Sææææææææææææææææææl!

Hæ. Er enn með ja hálfu viti & í alveg ágætis stuði bara. Var á einhverri síðu áðan þar sem ég lét inn mynd af mér og fékk upp þær Hollywoodstjörnur sem ég líkist ... skemmst frá því að segja að mér er líkt við óþekktar asískar stjörnur, ( ekki Takefusa samt ) David Hasselhoff og Harry Prins! Jáhá, geri aðrir betur. Annars ekkert merkilegt að frétta. Get ekki hugsað mér að horfa á restina af Danmörk-Pólland leiknum þar sem ég þoli ekki þessar þjóðir í augnablikinu.

                          

jæja, er sennilega að flytja í Buckingham höllina von bráðar þar sem ég verð bráðlega uppgötvuð sem týnda tvíburasystir Harry litla...eða dóttir David Hasselhoffs! Íris Dögg Hasselhoff... Fíla það. Sendi ykkur kóngakveðjur á meðan

Áfram Ísland!


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 20:12:26 / iris

Er viss um að Jesú elskar mig ...

Jæja Brynja mín, hér er smá blogg fyrir þig ... allt og ekkert svo sem að gerast hjá Íbbunni. Skemmti mér konunglega í vinnunni enda vinn aðeins með snillingum! ;)

Hélt reyndar að ég væri á leið undir græna torfu á dögunum þegar ég vaknaði við lag sem hljómaði svona "Jesú elskar þig, já mundu að Jesú ELSKAR ÞIG!...." þarf nú ekki að taka fram að þetta var sungið í kirkjustíl ...en já, útvarpið mitt sjálfstillti sig á Lindina og ég fríkaði smá út því ég hélt Guð væri að reyna að segja mér að eitthvað slæmt væri að fara að gerast. Allt í lagi, fór á fætur og í sturtu. Þurfti svo að teygja mig eftir burstanum í sturtunni og rann svona líka að það lá við ég höfuðkúpubraut sjálfa mig. (það er eitthvað mjög asnalegt við það að detta næstum því ... allsber!) en ok, var nýbúin að jafna mig á þessu þegar úr sturtunni ógurlegu var komið þegar ég sparka hnénu allillilega upp í vaskinn! Ohhhh! Stóð, ennþá nakin eins og hálfviti sem var enn asnalegra en í fyrra skiptið, hoppandi með sársaukatárin í augunum. Nú var ég á því að tími væri á að fara bara að sofa aftur því ég yrði fyrir bíl á leiðinni í vinuna. En eins og þið sjáið er ég enn með fullri meðvitund og sprelllifandi. Svolítið tilgangslaus saga.

Chippendales. Já kæra fallega fólk, ég er að fara á Chippendales. Það verður örugglega meiri frábæra steikin ein. Takk fyrir og förum öll að sofa í hausinn á okkur. ;)

Gleðilega menningarnótt! Hlakka til að sjá ykkur


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 11:26:34 / iris

Steikin ein

Jæja, hvað segiði? Djöfull er ég lélegur bloggari, takk Einar Fallegi fyrir að minna mig á það ;) Allt gott að frétta auðvitað. Er búin að fá hálft Fylkisliðið á móti mér með afar fallegum skrifum í Séð og Heyrt og svona. Hressandi. Magni auðvitað heldur manni svo spenntum við skjáinn fram á nætur vikulega. Djöfull er hann að standa sig! Áfram Ísland. Held samt að Tommy Lee ætti að hætta að hanga svona mikið með Kevin Federline ... sáuð þið klæðnaðinn á gaurnum í gær? Förum nú ekki út í Puerto Rico gelluna ...steik í haus.

Annars bara að kasta kveðju í bili. Love to the people


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 13:14:37 / iris

Trópík

                                            

Ef þið eruð algjörlega að missa af þessari tónlistarhátíð þá er það ekki gott. Mæli með að þið tjékkið á síðasta kvöldinu sem er í kvöld. Reyndar búið að færa gleðina yfir á NASA og þar með útilegustemmningin búin. En nóg er til af bjór :)

Sá Supergrass í gær og guð minn góður. Hann Gaz, fyrrverandi kærastinn minn, var svo guðdómlegur að það leið næstum yfir mig. Var svo ástfangin af honum þegar ég var 16 ára að það var vesen. Við fórum samt ekki í sleik við hann í gær. bara seinna.

                                  

Gleðilegan Hvítasunnudag og hafið það gott :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 13:38:21 / iris

I did not carry a watermelon

Hæ, komin heim eftir letiferð á Spáni. mmmmm lovely. þið vitið það. En gerði nú ekki mikið annað en liggja í sólbaði (þar sem ég var ekki beint með djammliði með mér) og horfa á sætu strákana æfa dansatriði fyrir kvöldið á hótelinu ... sá fyrir mér að ég myndi "carry a watermelon" inn í svaðalegt partý hjá liðinu eitt kvöldið og upplifa Dirty dancing drauminn minn, verða yfir mig ástfangin, dansa eggjandi dansa með fallega elshuga mínum sem myndi svo segja við pabba minn "Enginn setur Íbbu mína í hornið!" . Ekkert af þessu gerðist auðvitað. Í staðinn fyrir að upplifa Dirty dancing drauminn þá upplifði ég í staðinn atriði úr myndinni "Along came Polly" ... var við það að deyja því ég meikaði ekki að vera í sólbaði síðasta daginn þegar einn af sætu dönsurunum spurði okkur Hlyn (kærasti systur minnar) hvort við værum game í fótbolta. Held það nú, elta bolta á eftir ekki bara einum sveittum og brúnum spánverja heldur var hinn sæti lika með. Stelpan sló til og þá gerðist það. Á vellinum var staddur Breti sem var ber að ofan og í speedo-skýlu einum klæða. Í hita leiksins fékk ég hans sveitta og ekki svo kynþokkafulla líkama í andlitið. Ég hætti í fótbolta eftir þetta atvik.

Spread the love people


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 22:26:38 / iris

Úr engu í allt

Þá er maður búin með ljósmyndunina. Allt of skemmtilegt og allt of stutt.

Vil ég hér bjóða þér og ykkur öllum á ljósmyndasýningu okkar útskriftarnema á morgun, föstudaginn 12 maí milli kl. 17 - 19 í Vörðuskólanum (við Barónstíg) hliðiná Iðnskólanum (ekki vera mikið lengur en til kl.19 því við erum svo að fara á fyllerí). Þar verður stuðið krakkar mínir og nóg af gosi og fallegu fólki skal ég segja ykkur. Annars bara hress. Ætla að halda upp á afmælið mitt á Costa del sol og svo er ég að fara að flytja úr blíðunni í Breiðholtinu í vindinn í Vesturbænum ... er svo alveg viss um að ég eigi eftir að gleypa eitt stykki býflugu núna bráðlega þar sem ég virðist blaðra út í eitt og um ekki neitt ...

Jæja, þá sjáumst við öll á morgun. Munið að dást mjög hátt og snjallt yfir myndinni minni þannig að allir heyri ... Love to the people ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 15:08:02 / iris

Won't you take me to ... funkítown!

                           

Gleðilegan dag allir saman. Við Tómas litli fallegi frændi búin að bóna bílinn eins og skilda er á svona dögum og allt að gerast. Keyrði svo næstum því á gangandi vegfaranda í fyrradag. Hann Gísla Martein ... og konuna hans ... hann brosti bara og hélt áfram að drekka kaffið sitt. já já, góða helgi elskurnar. feel it ;)

Sjáumst í gleðini ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 18:31:45 / iris

Sulta

Það er allt of langt í helgina. Er svo mikið að bíða eftir að vakna á laugardaginn að það er rosalegt. Er nefnilega algjörlega búin með öll verkefni nema lokaverkefnið í skólanum en það á að klárast fyrir föstudaginn. Er búin að vera svo allt of tæp á því með verkefnin núna síðustu daga að það er ekki einu sinni fyndið ... vildi helst fara undir sæng og gráta ... en þetta hafðist í dag ! Yeah! Alltaf skal maður gera hlutina á SÍÐUSTU stundu. Átti meira að segja eftir að mynda eitt verkefni, ekki bara vinna það og prenta, heldur mynda það á sunnudaginn, sem var ekki gott. Fékk mig í gang með hjálp Svanfríðar verkefnastjóra og dró stelpurnar að meis-vegg við Sæbrautina þar sem Svampa tróð í sig þynnkuborgara og Sigurrós stóð svo á nærbuxunum á háannatíma við Sæbrautina ;) Good stöff. Mikið hlegið. Enda ansi þreyttar og þunnar .. eða við Svanfríður sem höfðum fengið stuð úr stuðbyssu í partýi kvöldið áður ... það er nú önnur saga. Jæja, hef ekkert skemmtilegt að segja ykkur ... læt hér fylgja eina af myndunum sem fæddust í góða veðrinu á sunnudaginn ...djöfull eru stelpurnar flottar ...meiri sulturnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 19:39:29 / iris

Draugar & draugabani

hæ. hvað er svo uppi? stelpan auðvitað nett þunn og heiladauð eins og vanalega á sunnudögum ... get sagt ykkur það að ég varð fyrir því óláni aðfaranót fimmtudags að vera ofsótt af tveimur draugum. hef reyndar lent áður í þessu í herberginu á nr. 28 en þarna varð ég það hrædd að ég spennti fast greipar og fór tvisvar með faðirvorið og einhverja aðra bæn sem ég kann ekki alveg. ja hérna, var svo ekki að meika að fara heim að sofa kvöldið eftir þannig ég hékk í baði heima hjá mömmu og svo í tölvunni þangað til ég varð svo rangeygð af þreytu að ég varð að fara heim að sofa ... meira vesenið, og já, eftir að ég var búin að slaka á vöðvabólgunni í baðinu þá náði ég ekki helvítis tappanum úr því! Hamaðist sveitt við að reyna  að ná tappafjandanum með allsskonar hjálpartækjum en allt kom fyrir ekki. vöðvabólgan var samt ekki lengi að koma aftur ... en, mamma mín er nú alveg kostuleg. sagði tengdamömmu sinni frá draugaraunum mínum og hvað haldiði. Tengdó þekkir þá konu sem fremur svona særingu. hún er sem sagt draugabani. Mamma hringdi auðvitað í fallega barnið sitt og sagði mér góðu fréttirnar. gat nú ekki annað en hlegið því ég sé þetta nú alveg í anda. væri örugglega fyndið að fylgjast með svona særingu, og fræðandi. held ég bíði samt með þetta ...

annars þá labba ég þessa dagana eins og sólbrenndur kjúklingur. vá, er eins og hálfviti. harðsperrur aftir danstímann ógurlega. ótrúlegt hvað maður getur haldið sig góðan dansara ... þangað til maður sér sjálfan sig í speglinum í full swing ... hmmmm ;)

er annars á leið í bíó á eftir. Við Svampa & Óli Hjö ætlum að sjá einhverja fallega og afar mannskemmandi hryllingsmynd að mér er sagt. Frábært. Alltaf gaman að eyða peningum í einhvern viðbjóð.

Sjáumst


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 19:50:42 / iris

super bros

já nei, nei. kannski komin tími til að láta heyra aðeins í sér hér. Gleðilega páska allir saman. Búið að vera frábært páskafrí hingað til. Lilja kom í heimsókn í síðustu viku og skemmti mér konunglega eins og henni einni er lagið ;) Allur pakkinn tekinn á þetta, Eldsmiðjan, Oliver, allt og mikið bacardi lemon, góð ræma, Kringluferð og Kolaportið .... fundum líka nýtt orð yfir karlmenn ... gerpi.

Tókum auðvitað smá photo session á föstudaginn langa ... Miss Hawaian Tropic & skítuga fermingarstúlkan  ...

                       

                                         

Já, smá logó í breininu. Annars þá lánaði Lilja mér hlut sem mig hefur dreymt ansi lengi um að fá ... Nintendo tölvuna sína! Shit, ég er algjörlega dottin í hana og tók laugardaginn auðvitað í að klára Super Marío Bros 3. Það fór ansi mikill tími í gær í að reyna að tala um fyrir tölvunni að mamma sín vildi spila Super maríó 1. Það var sko  blásið, nuddað, sló öllum gullhömrum sem ég kann og allur pakkinn en allt kom fyrir ekki. Kláraði þá bara meirihlutann af nr 3 aftur ... ji minn eini, tók svo þá skynsömu ákvörðun í gærkvöldi að nú yrði ég að taka pásu þar sem ég lá, með ljótuna á háu stigi nota bene, eins og svín með súkkulaði í kringum munninn og sigg á puttunum eftir of mikið tölvuspil að drífa mig út á lífið með Fjólu nef & Venna. Það er nú skemmst frá því að segja að við Fjóla áttum auðvitað dansgólfið á Oliver en ekki veit ég hvað ég hélt mig vera. Var í gellubuxunum mínum og sveiflaði hárinu eins og fífl þangað til allir karlmennirnir þarna inni urðu náttúrulega brjálaðir í mig. Fönkí.

jæja, er að bíða eftir að Svampa mín komi heim að austan og ætla að gleðja hana með því að mæta heim til hennar með góðan skammt af nammi, kóki, myndinni Walk the Line og gott slúður.


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 17:19:28 / iris

Flensan & brúðkaup

ja nú er maður alveg að verða vitlaus ... er búin að hanga heima með vírus í lungunum og maga alla vikuna ...  nei ekki alveg manneskjan í þetta að vera veik heima en gat ekkert við þessu gert í þetta sinn djöö ... ætla núna algjörlega að fara eftir því sem læknirinn segir því mamma er að fara að gifta sig á laugardaginn og ætlar apafóstrið ( Ég ) að vera súperhress þann daginn! Já mamma bara að fara gifta sig, rosa ánægð með mína ;) Vitiði að í sumum löndum er það talið til lukku að henda skóm í brúðhjónin þegar þau labba út úr kirkjunni ... sé það nú í anda ... væri frekar fyndið ;) en örugglega ansi sárt. Einhleypum konum er einnig ráðlagt sumstaðar að taka með sér sneið af brúðartertunni og sofa með hana undir koddanum eftir brúðkaupið ... þá munu þær dreyma manninn sem þær munu giftast ... smá fróðleiksmolar þar sem ég hef ekkert betra að gera en að horfa á ógeðis fræga & fallega fólkið og öll flottu fötin þeirra á E! Orðið djöfulli þreytandi svona á þriðja degi ... well, what the hell ætli maður fari ekki ath hvað Sarah Jessica sé að gera ....


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 21:11:07 / iris

Af stað , fylgdu mér, áður en að sígarettan gengur frá þér ...

Ég er að hugsa um að gangi í þetta lið ...það er bara of töff ... tjékk it ... http://www.kvikmynd.is/video/OldReyklausaLidid_512k.wmv

jahá! ef þetta er ekki almennileg auglýsing þá veit ég ekki hvað!


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 17:33:57 / iris

Ó Mr Bauer

Ja hvað haldiði að hafi komið óvænt úr framköllun á dögunum ... Var það ekki Kiefer old buddy old pal. Je minn eini, var búin að steingleyma þessu en við Lilja lógó house bógó urðum auðitað að fá stjörnumynd með manninum þegar hann var hérna um jólin ... mættum bláedrú og allt of meðvitaðar af því hve mikilir LÚÐAR við vorum á Grand rokk á Þorláksmessu með myndavél. Það tók okkur klukkutíma að mana okkur upp í að biðja um mynd ... vorum auðvitað eins og hálfvitar en kallinn sló sem betur fer til. O Kiefer. Það kom mér samt á óvart hversu ókynþokkafullur maðurinn er. Varð fyrir vonbrigðum. Pínulítill með risastóran haus.

                      

Af hverju ætli gaurnum sem á Friday's veitingastaðinn dottið í hug að skíra staðinn sinn "Guði sé lof að það er föstudagur" eða föstudagar. TGI Friday´s thank God it's Friday's .... ég sótti einu sinni í hallæri um vinnu þarna ... Svanfríður getur ekki hætt að minna mig á það ... og sjá fyrir sér vinkonu sína uppdressaða í Friday's búningnum ...axlarbönd og allur pakkinn ... ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9